Back to search

sjúkraþjálfari

Ás hjúkrunarheimili
ISNorwegian20d ago

Langar þig að starfa við fjölbreytt og skemmtilegt starf í líflegu og heimilislegu umhverfi?Við hjá Ási erum að leita að sjúkraþjálfara til starfa. Í starfinu færðu tækifæri til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði sjúkraþjálfunar og stuðla að aukinni færni og vellíðan heimilisfólksSjúkraþjálfari í Ási gegnir jafnframt hlutverki deildarstjóra sjúkraþjálfunar og hefur því gott svigrúm til að móta starfið, þróa þjónustuna og koma eigin hugmyndum í framkvæmd.Starfshlutfall er eftir samkomulagi.Helstu verkefni og ábyrgð:· Fagleg umsjón og skipulag sjúkraþjálfunar á heimilinu· Ábyrgð á faglegri þróun og gæðum sjúkraþjálfunar· Þátttaka í teymis- og deildarstjórafundum og samstarf við aðra stjórnendur· Umsjón með aðstöðu, búnaði og hjálpartækjum· Skipulag og þátttaka í fræðslu starfsmannaMenntunar- og hæfniskröfur· Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari· Reynsla af starfi sem sjúkraþjálfari· Góð íslenskukunnátta· Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi· Góð samskiptafærni og jákvæðniFríðindi í starfi· Stytting vinnuvikunnar· Heilsustyrkur· Öflugt starfsmannafélagÍ Ási starfar öflugur og samheldinn hópur starfsfólks þar sem áhersla er lögð á gott samstarf, fagleg vinnubrögð, góðan vinnuanda og heimilislegt umhverfi.Ás er hluti af Grundarheimilunum, þar sem vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum. Grundarheimilin starfa eftir Eden-hugmyndafræðinni.Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt gildandi kjarasamningi Sjúkraþjálfarafélags Íslands og SFV. Vinsamlegast sendið inn ferilskrá og kynningarbréf með umsókn.Við hlökkum til að heyra frá þér!Nánari upplýsingar um starfið veitir:Birna Sif framkvæmdastjóri hjúkrunar og Theodóra mannauðsstjóri

Apply at Ás hjúkrunarheimili

Summary and match are AI-generated; verify details on the original posting.

Listed via EURES. All sources