Prentari / Printer
Prentmet Oddi leitar að ábyrgðarmiklum, nákvæmum og metnaðarfullum starfsmanni til að sinna starfi prentara. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu framleiðsluumhverfi þar sem gæði, þjónusta og fagmennska eru í fyrirrúmi. Helstu verkefni: Stýra og hafa umsjón með offsetprentvél. Úttekt og samanburður prófarka og prentarka til að tryggja gæði framleiðslu. Umsjón með viðhaldi véla og útfylling viðhaldsbókar. Veita svör og ráðgjöf varðandi prentun og tæknileg atriði. Umhirða og frágangur vinnuaðstöðu. Önnur tilfallandi verkefni tengd starfssviðinu. Hæfniskröfur: Reynsla af offsetprentun eða sambærilegri framleiðslu er kostur. Góð tæknileg þekking og hæfni til að vinna sjálfstætt. Nákvæmni, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð. Jákvætt viðhorf og góð samstarfshæfni. Áhugi á gæðum og stöðugum umbótum. Launakjör fara eftir reynslu, þekkingu og hæfni umsækjanda. Starfið fellur undir kjarasamning Grafíu. Vinnutími er frá 08:00 til 16:00 virka daga, en til 15:30 á föstudögum. Um Prentmet Odda: Prentmet Oddi er stærsti framleiðandi landsins á kartonumbúðum, almennu prentverki og bókum. Félagið vinnur jafnframt með mörgum af öflugustu umbúðaframleiðendum Evrópu til að veita fyrirtækjum heildarlausnir á sviði umbúða. Prentmet Oddi þjónustar meginþorra af kröfuhörðustu fyrirtækjum landsins og hefur gert það í áratugi með hraða, gæði og persónulega þjónustu að leiðarljósi. Áhugasamir umsækjendur eru hvattir til að sækja um starf á: 🔹 https://alfred.is/starf/prentari-oskast-6 eða 🔹 https://www.prentmetoddi.is/prentmet-oddi/atvinnuumsokn Nánari upplýsingar má einnig fá með því að senda fyrirspurn á . Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað fyrir gæðum, tæknilega færni og áhuga á að taka þátt í framleiðslu á fyrsta flokks prentverkefnum. Umsóknarfrestur er til og með 12 september 2026 ------------------------------------------------------------------------------------- Prentmet Oddi is seeking a responsible, detail-oriented, and motivated Offset Printer to join our production team. This is a varied and challenging position within a dynamic manufacturing environment where quality, service, and professionalism are key priorities. Key Responsibilities: Operate and oversee offset printing presses. Inspect and compare proof sheets and printed sheets to ensure production quality. Perform routine machine maintenance and maintain maintenance records. Provide guidance and answer questions regarding printing processes and technical matters. Maintain a clean,...
Apply at Prentmet Oddi ehf.Summary and match are AI-generated; verify details on the original posting.
Listed via EURES. All sources